Flekaskil - 14. þáttur
Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda.
Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland."
Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti.
Fleiri þættir af Flekaskil
- Flekaskil - 26. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Gaza og Vesturbakkinn5. október 2026
- Flekaskil - 25. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Íran28. september 2026
- Flekaskil - 24. þáttur - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Grænland, ástarsamband ESB og Kanada og framtíð EES21. september 2026
- Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum14. september 2026
- Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon7. september 2026
- Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge31. ágúst 2026






