Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson

Pólitík

Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

Flekaskil - 26. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Gaza og Vesturbakkinn

Hver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um þjóðarmorð, alþjóðalög og stríðsglæpi máli? Eru líkur á að tveggja ríkja lausn verði að veruleika og getum við bundið vonir við að varnalegur friður komist á.

Flekaskil - 25. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Íran

Íran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um sögu og stjórnmál Mið-Austurlanda er gestur Dags B. Eggertssonar í Flekaskilum.

Flekaskil - 24. þáttur - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Grænland, ástarsamband ESB og Kanada og framtíð EES

Flekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22. september. Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingu og sérfræðingur í málefnum Grænlands ræðir stöðuna. Við fjöllum um tímamótaræður Ursulu von der Leyen og Mark Carney um nánara samband ESB og Kanada, stöðu EES-samningsins og stefnumarkandi yfirlýsingu Norðmanna um þróun samningsins, stöðu Íslands í því samhengi og væntanlegan fund Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping leiðtoga Kína í vikunni.

Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum

Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi.

Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon

Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin.

Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge

Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytasendingar í Íran, eignarhald og olíugjafir til Trump í Venesúela og fjölmargt fleira er umfjöllunarefni í „Heimurinn á korteri“ – yfirliti yfir það fjölmarga sem gengið hefur á undanfarna daga á meðan Ísland var undirlagt af Evrópu-umræðunni.

Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa

Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum.

Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan

Þegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já og nei og óvissu um framtíð EES-samningsins.

Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta

Bandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds að ströndum spænska hluta Marókkó, Ceuta, sem olli pólitískum skjálfta í Evrópu og var kallað innrás í Evrópu. Afleiðingar og staða Íran-stríðsins, Gaza, yfirgripsmiklar árásir sem við köllum sjaldan það heldur fjölþáttaógnir eru að verða hluti af daglegum fréttum og veruleika. Einnig ræðum við grein Economist um þjóðaratkvæðgreiðsluna um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn

Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í timariti Vörðu - og muninum á stjórnmálum og pólitík.

Þér gæti líka líkað...