#149 – Rétt þjálfun, hæfni og skilningur flugmanna getur skilið á milli feigs og ófeigs segir „guðfaðir” UPRT þjálfunar. Sj´álfvirkni, háþróuð kerfi og minna handflug kalla á nýjan nálgun í þjálfun – Dr. Sunjoo Advani
Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og þjálfunardeildar Icelandair. Hann segir að rétt þjálfun flugmanna sé meginatriðið í að koma í veg fyrir slys eins og þau sem valdið hafa flestum banaslysum í farþegaflugi í heiminum á síðustu árum. Þau eru flest rakin til þess að flugmenn hafa af einhverjum orsökum misst stjórn á flugvélinni og í kjölfarið ekki náð að fljúga vélinni út úr slíkum aðstæðum þar sem flugvélin er komin langt út fyrir það sem kallast getur venjulegt flug. Flugvélin verður það sem skilgreint er sem „UPSET“.
Dr. Sunjoo segir samvinnu allra hagsmunaaðila í flugi vera lykil að góðum árangri og hrósar samstarfi þjálfunardeildar Icelandair, Landhelgisgæslunnar og Samgöngustofu í þessum efnum. Fróðlegt spjall við merkan mann sem hefur um áratuga skeið verið í forystu á alþjóðavettvangi fyrir bættu öryggi í atvinnuflugi.
Fleiri þættir af Flugvarpið
- #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson4. október 2026
- #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson30. september 2026
- #170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie17. september 2026
- #169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson14. september 2026
- #168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.3. september 2026
- #167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason26. ágúst 2026





