#142 - Ferðarof eða raskanir á flugi eru flugfélögunum dýr – AVILABS er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þjónar flugfélögum um allan heim þegar flug raskast – varð til eftir fall WOW og stækkar hratt – Sveinn Akerlie
Rætt er við Svein Akerlie stofnanda og forstjóra Avilabs sem er öflugt íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfir sig í þjónustu við farþega þegar raskanir verða á flugi eða það sem kallast ferðarof. Í desember s.l. urðu raskanir á meira en 700 þúsund flugferðum vítt og breitt um heiminn sem kallar á skjóta úrlausn mála fyrir milljónir farþega og þar liggur markaðurinn fyrir lausnir frá AVILABS. Kostnaður flugfélaga við raskanir á flugi telur tugi milljarða dollara á hverju ári og það hvernig úr slíkum málum er unnið getur skilið á milli þess hvort flugfélag skilar hagnaði eða ekki. Sveinn segir hér frá þessari einstöku viðskiptahugmynd og tilurð fyrirtækisins þar sem nú starfa 35 manns í sérhæfðum störfum tengdum flugi.
Fleiri þættir af Flugvarpið
- #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson4. október 2026
- #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson30. september 2026
- #170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie17. september 2026
- #169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson14. september 2026
- #168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.3. september 2026
- #167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason26. ágúst 2026





