#140 Gamlársdagur á Reykjavíkurflugvelli – spjallað við nokkra flugmenn á rölti um Fluggarða á síðasta degi ársins 2025.

· Fréttir

Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru:
Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.

Flugvarpið

Úr hlaðvarpinu

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Flugvarpið