#139 – Farþegum um KEF fækkar annað árið í röð – tengifarþegum fækkar mest – forstjóri ISAVIA vill halda dampi í gegnum lægðina og vera tilbúinn þegar farþegum fjölgar á ný - Sveinbjörn Indriðason

· Fréttir

Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA um reksturinn á Keflavíkurflugvelli í tilefni af nýrri farþegaspá fyrir árið 2026. Spáin gerir ráð fyrir töluverðri fækkun farþega um völlinn og munar þar mestu um 15% færri tengifarþega. Sveinbjörn segir að þessi fækkun muni hægja á framkvæmdum á vellinum, tekjurnar minnki á sama tíma og kostnaður hækkar sem hefur áhrif á afkomuna. Hann leggur samt áherslu á að ISAVIA horfi í gegnum tímabundna niðursveiflu, haldi uppi góðri þjónustu og allt verði tilbúið til að grípa tækifærin þegar umferð og farþegum fjölgar á ný um tengimiðstöðina. Forstjórinn ræðir einnig málefni Reykjavíkurflugvallar, afturvirka reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play, samningamál við flugumferðarstjóra og margt fleira. Áhugavert spjall við forstjóra ISAVIA- fyrirtækis sem er í lykilhlutverki í flugmálum okkar Íslendinga.

Flugvarpið

Úr hlaðvarpinu

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Flugvarpið