#152 – AVIANS tekur við af ISAVIA ANS. Ísland í leiðtogahlutverki í flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atlantshafinu. Framkvæmdastjórinn segir metnað um að auka sveigjanleika og bæta þjónustuna við flugið. - Kjartan Briem.

· Fréttir

Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niður á þjónustunni eins og stundum hefur gerst á síðustu árum. Hann segir kynslóðaskipti vera að eiga sér stað í hópi flugumferðarstjóra vill sameina krafta krafta starfsfólks um að auka sveigjanleika og tryggja um leið öfluga þjónustu við flugið.

Flugvarpið

Úr hlaðvarpinu

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Flugvarpið