#153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir

· Fréttir

Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðrún Hrefna er af Suðurnesjunum og er ein þeirra sem bjó í Grindavík þegar rýma þurfti bæinn vegna jarðhræringa og býr nú Keflavík.
Áhugavert spjall við öfluga konu þar sem sjónum er beint að fjölbreyttum störfum flugvirkja og ekki síst skipulagi viðhalds á farþegaþotum í dag.

Flugvarpið

Úr hlaðvarpinu

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Flugvarpið