# 154 - Umhverfisskattar ógna tengimiðstöð flugs um Ísland. ESB vinnur að endurskoðun á ETS kerfinu. Flugvarpið rýnir í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu til ESB sem innlegg í þessa vinnu og rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins

· Fréttir

Í þættinum er fjallað um ETS viðskiptakerfið og áhrif þess á flugrekstur í Evrópu og ekki síst hér á Íslandi. Rýnt er í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu í samráðsgátt Evrópusambandsins sem innlegg Íslands í vinnu við endurskoðun á ETS kerfinu. Rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins í Brussel en hann hefur á síðustu árum unnið að því að greina áhrif ETS kerfisins á flug og við að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri við framkvæmdastjórnina í Brussel. Evrópusambandið er að meta áhrifin af ETS kerfinu á samkeppnishæfni flugfélaga, flugtengingar og fjarlægar byggðir eins og Ísland. Þessari endurskoðun á að ljúka á þessu ári og því mikið undir að vel takist til.

Flugvarpið

Úr hlaðvarpinu

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Flugvarpið