#165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson
Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri Fisfélags Reykjavíkur sem er fjölmennasti flugklúbbur á Íslandi í dag með um 400 félagsmenn. Félagsstarfið þar er blómlegt og Ágúst segir menn ræða opinskátt um atvik og óhöpp sem verða innan hópsins til að aðrir megi læra af þeim, en hann gagnrýnir um leið flugsvið Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) fyrir skort á upplýsingum um flugatvik- og slys á síðustu misserum, til að aðrir flugmenn geti lært af því gerst hefur.
Í tengslum við átak til að efla öryggi í almannaflugi þá hefur Ágúst hannað og framleitt nýja tegund af veðurstöðvum sem hafa reynst einstaklega vel við íslenskar veðuraðstæður. Veðurstöðvarnar heita Pixweather og eru komnar upp á mörgum stöðum hérlendis og erlendis og henta flugáhugamönnum einkar vel. Ágúst segir líka í þættinum frá fyrirhuguðu Íslandsmóti í flugi sem áætlað er í ágúst n.k. og fræðir hlustendur um ýmsar þrautir sem flugmenn þurfa að leysa þar.
Fleiri þættir af Flugvarpið
- #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson4. október 2026
- #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson30. september 2026
- #170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie17. september 2026
- #169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson14. september 2026
- #168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.3. september 2026
- #167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason26. ágúst 2026





