Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur
Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að markmið náist. Hún segir vandann ekki liggja í skorti á aga eða þekkingu, heldur í hugsunum okkar og sjálfsmynd.
Linda rekur LMLP-prógrammið og Lífsþjálfaskólann og heldur einnig úti Podcastinu með Lindu Pé. Nú er hún nýlega farin af stað með fimm daga frítt netnámskeið þar sem hún kennir svokallaðan árangurskóða – aðferðafræði sem hún segir skila varanlegum breytingum, ekki skammtímalausnum. Í viðtalinu ræðir Linda meðal annars sjálfsmynd, fjármál, lífsstíl, eigin reynslu af gjaldþroti og endurreisn og hvers vegna árangur er aldrei tilviljun.
Fleiri þættir af Fókus
- Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“23. janúar 2026
- Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“9. janúar 2026
- Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked31. desember 2025
- Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 202625. desember 2025
- Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn19. desember 2025
- Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á12. desember 2025






