Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til þess að taugakerfið hrundi og líkaminn sagði stopp.
Í Fókus, viðtalsþætti DV, opnar Kristín Þóra sig um kulnunina, aðdragandann að henni og það afgerandi augnablik þegar hún áttaði sig á að hún þyrfti að fá faglega aðstoð. Hún ræðir einnig um muninn á heilbrigðum metnaði og sjálfsniðurrifi, hvernig streita getur smám saman tekið yfir lífið og hversu mikilvægt það er að greina á milli kulnunar og annarra andlegra veikinda. Samhliða því fjallar hún um annasamt síðasta ár, ný hlutverk í þáttunum Dönsku konunni á RÚV og Heimaey í Sjónvarpi Símans, sýningu hennar Á rauðu ljósi á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu sem hefur slegið rækilega í gegn - og hvernig hún tekst í dag á við álag með meiri mýkt, forgangsröðun og stuðningi fjölskyldunnar.
Fleiri þættir af Fókus
- Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“23. janúar 2026
- Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur15. janúar 2026
- Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked31. desember 2025
- Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 202625. desember 2025
- Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn19. desember 2025
- Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á12. desember 2025






