Tveggja Turna Tal - Haraldur Árni Hróðmarsson
Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður.Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna.Kvikmyndaunnendur landsins munu líka njóta þessa þáttar enda er Halli kvikmyndafræðingur eftir að hafa gert lokaverkefni um sjálfan Jón Pál Sigmarsson !Við Turnarnir bjóðum Visitor velkomin í hópinn sem stuðningsaðilar. Þau bætast í hópinn með okkar hundtryggu aðdáendum í Nettó, Lengjunni, Netgíró, Hafinu fiskverslun, Fitness sport og Tékkanum Budvar!Turnarnir eru í útrás - fylgist með :)
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






