Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frumfluttur á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, félagaskipti í Bestu deildinni, landsliðið og fleira.
Gestur þáttarins er Flosi Eiríksson formaður Breiðabliks. Hann ræðir um tímabilið í Kópavogi, þjálfarabreytingarnar og landslagið í íslenska boltanum.
Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Ingólfur Hannesson ræddi við Kára Snorrason og fór yfir feril og kynni sín af Guðjóni Þórðarsyni sem lést á dögunum.
Ingólfur starfar jafnframt hjá ÍTF og var farið lauslega yfir stöðu Bestu deildarinnar undir lok þáttar.
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Landsliðsútgáfa af Innkastinu. Ísland er komið aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og goðsögnin Aron Einar Gunnarsson kvaddi í frostinu á Laugardalsvelli.
U21 landsliðið tapaði á grætilegan hátt í Grikklandi og EM draumurinn er úti.
Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Thule jólabjór (léttöl) og Eimskip bjóða upp á þáttinn.
Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta.
Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum.
Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og leikurinn verður gerður upp. Elvar Geir Magnússon og Arnar Gunnlaugsson á línunni.
Farið er yfir fréttir vikunnar, bæði hér heima og úti. Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson ræðir um þá ráðningu.
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum.
Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Andra Lucas Guðjohnsen.
Thule léttöl og Eimskip bjóða þér upp á þáttinn.
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti splúnkunýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag.
Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða líklegt byrjunarlið og spilað er viðtal við fyrirliðann Orra Stein Óskarsson sem tekið var á La Finca hótelsvæðinu. Landsliðsmenn tala agabrot síðasta glugga ekkert niður og horfast í augu við mistökin.
Í boltaspjallinu er víðar komið við; rætt um stjóramál Manchester United, fréttir og tíðindi úr Bestu deildinni og fleira.
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu.
Guðmundur Aðalsteinn og Haraldur Örn fara yfir helstu sögulínur eftir tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Everton er á flottu róli þrátt fyrir erfiðleika utan vallar en til að fara yfir það kom Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, í heimsókn í Coke stúdíóið.
Þá var farið yfir það hvaða stjórar væru líklegastir til að missa starfið í landsleikjahléinu.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni.
Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir tímabilið. Rætt er um valið á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni og spilað viðtal við Arnar Gunnlaugsson.
Hvað er Bubka Sports Lab? Hallgrímur Heimisson svarar því. Þá segir Mate Dalmay frá heimsókn sinni á Old Trafford þar sem Manchester United vann magnaðan endurkomusigur á Roma í Meistaradeildinni og ræðir um Cristiano Ronaldo sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.