Leiðin á Laugardalsvöll - KFG verkefnið og Mike í blíðunni
Á mánudag fer Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, af stað.
Keppnin er haldin í fyrsta skipti en lið í 2., 3. og 4. deild taka þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár, en úrslitaleikur hennar fer fram á Laugardalsvelli.
Fjallað verður vel um keppnina á Fótbolta.net og er hluti af því sérstakt hlaðvarp í kringum keppnina, en þetta er fyrsti þátturinn.
Í þættinum ræddu Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke við Arnar Laufdal, leikmann Augnabliks og fréttaritara á Fótbolta.net, um fyrstu umferðina í keppninni.
Einnig hringdi Gummi í Kristján Másson, þjálfara KFG, og Mikael Nikulásson, þjálfara KFA, og fékk að heyra þeirra sýn á sumrinu hingað til. Þessi lið eru í toppbaráttunni í 2. deild og mætast í Garðabænum á morgun.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






