Ástríðan á aðventunni - Hvað er að frétta?
Strákarnir í Ástríðunni, Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári, hittust og spjölluðu um allt sem tengist 2. og 3. deild karla í fótbolta og það sem tengist þeim ekki neitt.
Meðal umræðuefna voru öll helstu félagaskipti liða í deildunum, þjálfaramál, sameining Leiknis F. og Fjarðabyggðar, óeining í Kormáki/Hvöt og hvaða lið eru ný í deildunum.
Einnig tilkynntu þeir Bola-Mann Ársins í ástríðunni og Sverrir Mar sagði skemmtilega frá frægðarför Óskars Smára í MK.
Þátturinn er í boði Bola og Ölgerðarinnar og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






