BÁN: Sjö stig og sjö mörk skoruð - Aron og GÖ á línunni
Egill Sigfússon var sérstakur gestur í Boltanum á Norðurlandi á fimmtudagskvöld. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir það helsta með Agli.
KA og Þór unnu en Þór/KA og Tindastóll töpuðu. Farið var vel yfir sigur KA á Dalvíkurvelli, tveir vítadómar, glórulaus tækling og einkunnagjöf á leikmenn KA. Þórsarar unnu 4-1 í Boganum og strákarnir heyrðu í Ólafi Aroni sem þótti eiga góðan leik á miðjunni í liði Þórsara. KA er með sjö stig eftir þrjá leiki og Þór hefur skorað sjö mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Pape Mamadou Faye skoraði í fyrsta leik en það dugði skammt fyrir Stóla. Hringt var í GÖ vélina sem leikur með bláum Dallas í sumar og loks var spáð í spilin fyrir næstu leiki.
Þátturinn er í boði PSA Studios, Kaffid.is og Vamos.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






