Áramótabomba Heimavallarins - Glerþök mölvuð
Árinu 2020 er að ljúka og Heimavöllurinn hendir í áramótauppgjörsþátt af því tilefni.
Gestir: Sveindís Jane, Ingibjörg Sigurðardóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir.
Hápunkti ársins var náð á þriðjudagskvöldið þegar íslenskar knattspyrnukonur komu, sáu og sigruðu í kjöri á íþróttamanni, þjálfara og liði ársins. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta og heyrir í mögnuðum gestum. Nýjasta atvinnukonan okkar, Sveindís Jane, segir frá félagaskiptunum til þýsku risanna í Wolfsburg. Ingibjörg Sigurðardóttir fer yfir magnað ár í Noregi og við ræðum landsliðsþjálfarastöðuna ómönnuðu við goðsögnina Vöndu Sigurgeirsdóttur sem bæði lék með og þjálfaði liðið á sínum tíma. Þar að auki rifja þáttastýrur upp ýmis eftirminnileg atvik frá árinu sem er að líða.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






