Ítalski boltinn - Forsetar harðir í horn að taka
Zlatan Ibrahimovic er kominn með sjö mörk í fjórum leikjum fyrir AC Milan sem trónir á toppi Serie-A eftir 6 umferðir. Bakfallsspyrnumarkið hans gegn Udinese var eitt af fjölmörgum stórkostlegum mörkum umferðarinnar. Varnarlína Inter bauð upp á hrekkjavökuþema gegn Parma og tveir þjálfarar eru á barmi þess að missa starfið. Þrír Íslendingar spiluðu stór hlutverk í bikarleikjum á meðan landsliðsmaður er kominn út í kuldann hjá einum harðasta forseta landsins. Um þetta allt og meira til er fjallað í þætti vikunnar af ítalska boltanum.
Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






