Fantabrögð - Hægðir og lægðir
00:00 - Eyjabitinn
45:14 - 50skills
1:07:30 - Premier League
Það voru hægðir og lægðir í þessari viku hjá Fantasy leikmönnum. Lítið um hæðir.
Kristófer Máni og Arnór Gauti, varamenn Fantabragða, mættu til Gylfa í stúdíóið á meðan Aron er í sumarfríi. Stigaleysið var algjört í Eyjabitanum. Meira var um að vera í 50skills þótt einungis tveir leikir hafi farið fram í síðustu umferð. Enska Fantasy er nánast búið.
Þrátt fyrir erfiða tíma í Fantasy, eins og venjan hefur verið, voru strákarnir kátir enda Fylkir komnir á toppinn í Pepsi Max deild karla. Þeir reyna þó misvel að láta Fylkisgleraugun ekki blinda sig og fóru yfir næstu leiki.
-Skiptir máli hvort leikmaður spili á gervigrasi eða grasi?
-Munu Valsstelpur halda áfram að skila stigum þegar þær mæta Fylki?
-Ertu spennandi Fantasy leikmaður ef þú spilar ekki fyrir Manchester?
Þessu var svarað og ýmsu fleira.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






