Fantabrögð - 18. umferð - Jólabann
18. umferðin í Fantasy Premier League reyndist alveg eins erfið og hún virkaði á pappír. Jamie Vardy og Danny Ings skoruðu en Manchester United og Tottenham fóru illa með fólk. Sérstaklega Heung Min Son sem skellti sér í 3 leikja jólabann með því að fá beint rautt. Hann var einn vinsælasti fyrirliðinn um helgina og því ansi margir spilarar sem enduðu með mínusstig fyrir fyrirliðann, enda virkar fyrirliða "bónusinn" í báðar áttir og því tvöfaldast mínusinn ef fyrirliðinn manns er í þeim pakka.
Það er mikið af leikjum framundan og Aron fékk Baldvin Ingvar Tryggvason til að spá í næstu tvær umferðir, en næsti þáttur af Fantabrögðum verður 30. des þegar 19. og 20. umferð verða gerð upp. Gleðileg jól!
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






