Miðjan - Grétar Rafn yfirmaður fótboltamála
Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður, menntaði sig í fótboltafræðunum eftir að skórnir fóru á hilluna og er í dag yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood í ensku C-deildinni. Félagið á sér það markmið að komast upp í Championship-deildina og fer vel af stað á þessu tímabili.
Grétar var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni og Fótbolti.net fékk hann í spjall. Hann sagði frá starfi sínu hjá Fleetwood og færði rök fyrir því að staða yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ gæti hjálpað íslenskum fótbolta.
Íslenska landsliðið, framtíðarpælingar og Joey Barton var meðal þess sem rætt var um í Miðjunni að þessu sinni.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- Útvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytingar hjá bikarmeisturunum20. nóvember 2026
- Guðjóns Þórðarsonar minnst og sagan af kossinum fræga19. nóvember 2026
- 38 umferðir - Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít18. nóvember 2026
- Innkastið - Lúxus landsliðsgluggi og takk Aron16. nóvember 2026
- Útvarpsþátturinn - Gauja Þórðar minnst eftir fimm stjörnu frammistöðu í Búlgaríu14. nóvember 2026
- Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum12. nóvember 2026






