Miðjan - Óskar Hrafn og Arnar Halls gera upp geggjaða deild
Í Miðjunni þessa vikuna ætlum við að gera upp stórskemmtilegt sumar í 2. deild karla. Deildin var æsispennandi og margir eygðu möguleika á að komast upp.
Elvar Geir Magnússon fékk til sín þjálfarana tvo sem komust upp í Inkasso-deildina, Arnar Hallsson hjá Aftureldingu og Óskar Hrafn Þorvaldsson hjá Gróttu, og þeir gerðu upp tímabilið á afar hreinskilinn hátt.
Báðir staðfestu að þeir verði áfram við stjórnvölinn hjá sínum félögum.
Rætt var um deildina í sumar og vonir og væntingar hjá Aftureldingu og Gróttu. Þá voru fréttamál úr deildinni til umræðu, þar á meðal eitt umtalaðasta málið á kaffistofum landsins: Mál Hugins og Völsungs.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- Útvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytingar hjá bikarmeisturunum20. nóvember 2026
- Guðjóns Þórðarsonar minnst og sagan af kossinum fræga19. nóvember 2026
- 38 umferðir - Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít18. nóvember 2026
- Innkastið - Lúxus landsliðsgluggi og takk Aron16. nóvember 2026
- Útvarpsþátturinn - Gauja Þórðar minnst eftir fimm stjörnu frammistöðu í Búlgaríu14. nóvember 2026
- Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum12. nóvember 2026






