HM innkastið - Eiga heima á stærsta sviðinu (Staðfest)
Þátttöku Íslands á HM í Rússlandi lauk með 2-1 tapi gegn Króatiu í Rostov við Don.
HM innkastið, það síðasta frá Rússlandi, var tekið upp í rútu eftir leik en þeir Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru þar yfir málin.
Hljóðgæðin eru ekki eins og best verður á kosið, enda er erfitt að losna við rútuhljóðin.
Meðal efnis var: Hetjuleg frammistaða gegn Króatíu, Heimir sendur til Bandaríkjanna, næsti landsliðsþjálfari, stór ákvörðun hjá KSÍ, Þjóðadeildin, Emil Hallfreðs, kaflaskil Kára, smáatriði sem skilja á milli, EM allsstaðar, senur í Rússlandi og margt fleira.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






