Ítalski boltinn - Torino
Í þessari viku heimsækjum við Joe Hart og félaga í vínrauða hluta Tórínóborgar.
Félagið Torino vann eitt sinn ítölsku deildina fjögur ár í röð og var á þeim tima eitt besta félagslið heims, ef ekki það besta. En flugslys batt enda þá sigurgöngu.
Fjallað verður um fyrirliðann sem spilaði fyrst fyrir bílaframleiðandann Alfa Romeo. Við heimsækjum líka enskumælandi markvörð sem ætlaði að læra ítölsku og Juventus-forsetann Alfred Dick, sem síðar stofnaði erkifjendurna Torino.
Fleiri þættir af Fotbolti.net
- 38 umferðir - Wildcard og vítamín7. október 2026
- Innkastið - Ósáttir en ósigraðir6. október 2026
- Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?4. október 2026
- Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur3. október 2026
- Hvað verður um Man City?1. október 2026
- Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin28. september 2026






