10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST

· Menning & listir

Þennan laugardaginn í Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín þá Snorra Þór Stefánsson og Hauk Örn Brink sem saman skipa dúettinn HAUSST, en þeir gáfu út sitt fyrsta lag nú á dögunum. Við ræddum við þá um tilkomu samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum.

Þá fengu umsjónarmenn þáttarins líka góða heimsókn frá þeim Söru Rut Arnardóttur og Stefáni Gunnlaugi Jónssyni frá Improv Ísland. Þau fóru í saumana á því hvað spuni er og kynntu okkur fyrir dagskrá haustins hjá grínhópnum sem fagnar einmitt 10 ára afmæli þetta árið.

Fram og til baka

Úr hlaðvarpinu

Fram og til baka

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Fram og til baka