Fram og til baka

RÚV

Menning & listir

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar

glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hefur náð frábærum árangri heima og heiman og selt ótrúlegan fjölda af bókum. Þessum ferli hafa fylgt ferðalög og Ragnar segir hlustendum Fram og til baka af fimm löndum sem hafa haft áhrif á hann og líf hans. Þar kennir sannarlega margra grasa þegar við förum frá Bútan til Seychelles eyja með viðkomu í heimalandi Agöthu Christie Í síðari hlutanum hyllum við afmælisbarnið Jake Shears og heyrum sögu glyshljomsveitarinnar Scissor Sisters.

Adda Baldurs knattspyrnuhetja

Fimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu tapi yfir í leiki sem færðu liðinu Íslandsmeistaratitil. Svo tölum við líka um allt hitt, fjölskyldulífið og fötluð börn. Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður það sem gerðist á deginum

Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur

Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda.

Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin

Uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar pælingar um lífið og tilveruna og hún var gestur Felix í Fimmunni. Hún talaði um fimm uppistönd sem breyttu lífinu og þar kenndi sannarlega margra grasa, allt frá fyrsta uppistandinu í London sem reyndist mikið frægðarför yfir í versta uppistand allra tíma í matsalnum í Borgarholtsskóla. Í síðari hlutanum fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum

Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins

Bergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók um Öld ímyndunaraflsins og hann kom í Fimmu hjá Felix og ræddi fimm tölvur sem höfðu áhrif á líf hans og fjölskyldunnar. Spjallið fór eins og vera ber um víðan völl og við sögu komu ýmis ævintýri á magnaðri ævi. Í síðari hlutanum minntist umsjónarmaður látinna snillinga, Dolly Parton, Tim Curry og Freddy Mercury en hann hefði orðið áttræður í dag. Að auki koma Harpa Þorvaldsdóttir úr hljómsveitinni Brek í spjall með nýtt lag undir hendinni

10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST

Þennan laugardaginn í Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín þá Snorra Þór Stefánsson og Hauk Örn Brink sem saman skipa dúettinn HAUSST, en þeir gáfu út sitt fyrsta lag nú á dögunum. Við ræddum við þá um tilkomu samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. Þá fengu umsjónarmenn þáttarins líka góða heimsókn frá þeim Söru Rut Arnardóttur og Stefáni Gunnlaugi Jónssyni frá Improv Ísland. Þau fóru í saumana á því hvað spuni er og kynntu okkur fyrir dagskrá haustins hjá grínhópnum sem fagnar einmitt 10 ára afmæli þetta árið.

Tónaflóð og enski boltinn

Í þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina. Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu og Felix þar sem þau ræddu til að mynda upphaf samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum.

Þér gæti líka líkað...