þegar heilbrigður lífstíll býr til streitu
Í þessum þætti langar mig að tala um eitthvað sem ég sé stundum hjá konum í dag.
Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr. Við vitum hvað við eigum að borða, við vitum að við eigum að hreyfa okkur og passa svefninn – en stundum verður heilbrigður lífsstíll líka að pressu.
Hvernig gerðist það að eitthvað sem átti að láta okkur líða betur varð stundum að öðru verkefni á to-do listanum?
Í þættinum tala ég um hvernig líkaminn bregst við streitu, af hverju einfaldara kerfi virkar oft betur til lengri tíma og hvers vegna stöðugleiki skiptir meira máli en fullkomnun.
Ég deili líka minni reynslu sem þjálfari og hvernig ég set upp æfingar fyrir konur inni á gurry.is, þar sem áherslan er á raunhæfan lífsstíl sem styður lífið – ekki tekur það yfir.
Stundum er lausnin ekki að gera meira.
Stundum er lausnin einfaldlega að gera hlutina aðeins einfaldari.
Fleiri þættir af Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa
- Fimm atriði sem hjálpa þér að borða betur.22. mars 2026
- líkaminn fer ekki í uppnám af ástæðulausu.7. mars 2026
- Emilía og Gurrý: Sumarkveðja frá Tene með tengdadótturinni23. júní 2025
- Þáttur 3: Ayurveda Kapha Dosha26. maí 2025
- Gurrý: þáttur tvö af þremur um Ayurveda. Annað Doshuspjall er um Pittudoshu16. maí 2025
- Gurrý: Þáttur eitt af þremur um Ayurveda. Fyrsta Doshuspjall er um Vötudoshu.3. maí 2025

