Gamlabúð Hlaðvarp

Gamlabud/MMH

Landið

Gamlabúð er safn, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og menningarhús á Höfn í Hornafirði.

Þáttur 28 - Hornfirskt tónlistarfólk - Villi Magg

Tuttugasti og áttundi hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar – Í þessum lokaþætti Vilhjálms  Magnússonar sem þáttarstjórnandi þessa þáttar, fer hann yfir sinn tónlistarferil. Í lok hlaðvarpsins er lagið Á bak við fjöllin sem samið er af Vilhjálmi. Í laginu spila einnig Júlíus Sigfússon(Gítar), Birkir (Gítar) Önnuson, Guðbjörg Anna Bergsdóttir (söngur). Hallur Ingólfsson (Trommur) og bandarískur contrabassaleikar sem heitir David.

Þáttur 27 - Saga Kvískerja fjölskyldunnar - Snævarr

Tuttugasti og sjöundi hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Snævarr Guðmundsson náttúrufræðing og forstöðumann Náttúrustofu Suðausturlands. Meginþema þáttarins er saga Kvískerjafjölskyldunnar og sérstaða hennar. Þemað tengist Kvískerjasýningu sem haldin verður í Gömlubúð í byrjun árs 2027. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 26 - Saga Kvískerja fjölskyldunnar - Hanna Dís

Tuttugasti og sjötti hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Hönnu Dís Whitehead hönnuð og byggðasafnsvörð hjá Byggðasafni Hornafjarðar sem rekið er af Menningarmiðstöðinni. Meginþema þáttarins er saga Kvískerjafjölskyldunnar og sérstaða hennar. Þemað tengist Kvískerjasýningu sem haldin verður í Gömlubúð í byrjun árs 2027. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 25 - Hornfirskt tónlistarfólk - Haukur Þorvalds

Tuttugasti og fimmti hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar - Í þessum tuttugasta og fimmta þætti er rætt við Hauk Helga Þorvaldsson, tónlistarmann, netagerðameistara og fyrrverandi starfsmann æskulýðsmála hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Meginþema þáttarins er tónlistarfólk á svæðinu. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðsmála og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði

Þáttur 24 - Skapandi greinar - Ragnar Imsland

Fjörtándi hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Ragnar Imsland Kristjánsson, þúsundþjalasmið og fyrrverandi Slökkvuliðstjóra. Ragnar hefur smíðað mikið af vönduðum munum úr við, stáli og öðrum efnum, meðal annars ræðupúlt, eftirlíkingar af bátum og annað. Meginþema þáttarins er skapandi greinar. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðsmála og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 23 - Saga Kvískerja fjölskyldunnar - Laufey á Smyrlabjörgum

Tuttugasti og þriðji hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Laufeyju Helgadóttur, eiganda Hótels Smyrlabjargar og fyrrverandi ljósmóður. Meginþema þáttarins er saga Kvískerjafjölskyldunnar og sérstaða hennar. Þemað tengist Kvískerjasýningu sem haldin verður í Gömlubúð í byrjun árs 2027. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 22 - Hornfirskt tónlistarfólk - Jonni

Tuttugasti og annar hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar – Í þessum þætti er rætt við Kristjón Elvar Elvarsson, söngvara, munnhörpuleikara og starfandi húsvörð í Nýheimum. Meginþema þáttarins er tónlistarfólk á Hornafirði. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburðamála hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 21 - Saga Kvískerja fjölskyldunnar - Björn Arnars

Tuttugasti og fyrsti hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Björn Arnarsson, starfsmann Íþróttamiðstöðvar Hornafjarðar, ásamt því að vera fuglaskoðari og rannsakandi hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands til margra ára. Meginþema þáttarins er saga Kvískerjafjölskyldunnar og sérstaða hennar. Þemað tengist Kvískerjasýningu sem haldin verður í Gömlubúð í byrjun árs 2027. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 20 - Saga Kvískerja fjölskyldunnar - Guðný Svavars

Tuttugasti hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Guðnýju Svavarsdóttur, fyrrverandi bókasafnvörð. Meginþema þáttarins er saga Kvískerjafjölskyldunnar og sérstaða hennar. Þemað tengist Kvískerjasýningu sem haldin verður í Gömlubúð í byrjun árs 2027. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þáttur 19 - Saga Kvískerja fjölskyldunnar - Gísli frá Hnappavöllum

Nítjándi hlaðvarpsþáttur Gömlubúðar. Í þessum þætti er rætt við Gísla Jónsson frá Hnappavöllum. Meginþema þáttarins er saga Kvískerjafjölskyldunnar og sérstaða hennar. Þemað tengist Kvískerjasýningu sem haldin verður í Gömlubúð í byrjun árs 2027. Þáttastjórnandi er Vilhjálmur Magnússon, verkefnastjóri markaðs- og viðburða hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Þér gæti líka líkað...