#12 - 2026: Okkar spár fyrir komandi ár
Gervigreindarspár 2026: "Bingóspjald" framtíðarinnar
Í þessum þætti kíkja Sverrir og Pétur í glerkúluna og búa til „bingóspjald“ fyrir árið 2026. Við greinum nýjustu gögnin frá Epoch AI um sjálfbæran vöxt vs. eyðslutrend í tækniheiminum og veltum fyrir okkur hvenær þróun gervigreindar gæti staðnað. Erum við að fara að sjá líkön sem kosta meira en milljarð dollara í þjálfun eða munu tæknilegir flöskuhálsar hægja á öllu?
Í þættinum er farið yfir:
- Sverrir spáir um hraða framfara á næstu tveimur árum.
- Google vs. OpenAI
- Milljarð dollara líkanið
- RAM-skorturinn
- ChatGPT App Store
- Meta, Apple og Anthropic
- - -
Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/courses
Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson
Fleiri þættir af Gervigreind
- #19 - Fréttaþáttur: Mythos, Hermes og reikniaflsstríðið5. maí 2026
- #18 - Fréttaþáttur: Claude vs OpenClaw, TurboQuant, Autoresearch og fleira31. mars 2026
- #17 - Fréttaþáttur: Gervigreindir vinna saman og Elon Musk í sókn17. febrúar 2026
- #16 - Hugbúnaðarlausnir eru of dýrar. Hvernig á að laga það?27. janúar 2026
- #15 - Vibe coding og vibe working21. janúar 2026
- #14 - Gervigreind sem rak fyrirtæki í þrot12. janúar 2026

