50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is
Villi Neto, leikari, grínisti og tónlistarmaður, mætir í Gervigreindarklúbbinn og útskýrir hvers vegna hann er í „meðvitaðri uppreisn“ gegn gervigreind.
Við ræðum hvort gervigreind geti skapað raunverulega list, hvað tapast þegar vélar taka yfir skapandi ferlið og hvort fyrirtæki séu of fljót að skera niður kostnað með því að láta listafólk og þýðendur víkja. Villi segir frá áhyggjum sínum af stolnum þjálfunargögnum, falsmyndum, tæknirisunum og því að mannleg kunnátta og sérkenni glatist.
Samtalið fer einnig inn á íslenska sögu, uppistand, Skaupið, Sælir Nilli, Jodie Foster, Jack Black og stressklósettferðina sem gervigreind mun seint skilja.
Getur gervigreind samið fyndið grín? Er ferlið jafn mikilvægt og lokaútkoman? Og hvað fékk Villa til að nota ChatGPT í eina skiptið sem tæknin bjargaði honum?
Hreinskilið, skemmtilegt og ögrandi samtal um mennskuna, listina og framtíðina.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar6. október 2026
- 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús29. september 2026
- 49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur17. september 2026
- 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist10. september 2026
- 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon8. september 2026
- 46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson1. september 2026






