52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.is Hvað gerist þegar gervigreind mætir íslenskum tónlistariðnaði?
Í þessum þætti sest Stefán Atli niður með Þormóði Eiríkssyni, einum afkastamesta tónlistarframleiðanda landsins, sem hefur komið að hundruðum laga með mörgum stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar.
Þormóður segir frá leiðinni frá Ísafirði inn í tónlistarbransann, hvernig stórsmellir verða til og hvað skilur góðan tónlistarframleiðanda frá manneskju sem einfaldlega kann vel á tónlistarforrit.
Samtalið færist svo yfir í gervigreindina. Þormóður hefur prófað tól á borð við Suno en segir að niðurstaðan skilji hann eftir með ákveðna „flatneskju“. Að hans mati getur of mikið framboð af tilbúnum hugmyndum jafnvel drepið sköpunarkraftinn í stúdíóinu. Hann ræðir líka höfundarrétt, þjálfun gervigreindarlíkana á tónlist án samþykkis og reynslu sína af því að heyra eigið lag birtast í gervigreindargerðu efni.
Þormóður telur þó ekki að gervigreind sé einfaldlega eitthvað sem eigi að hafna. Hann sér möguleika í nýjum verkfærum og tækni, en leggur áherslu á að tónlist snúist að lokum um mannlega tengingu, sköpunarferlið og það að læra að tjá sig í gegnum hljóðfæri.
Við ræðum einnig Herra Hnetusmjör, Saint Pete, JóaPé og Króla, Birni, tónlistarframleiðslu, tekjuskiptingu, unga tónlistarmenn, framtíð stúdíósins og hvaða erlendu listamenn Þormóð dreymir um að vinna með.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 59. Hvað verður um störfin okkar? – Kristján hjá 50skills17. nóvember 2026
- 58. Frá spjallmenni í persónulegan aðstoðarmann - Magnús Sigurbjörnsson10. nóvember 2026
- 57. PlayStation, GTA og framtíð gervigreindar – Óli Jóels úr Game Tíví3. nóvember 2026
- 56. Er verið að gera mig óþarfa? Gervigreind og mannauðsmál með Tékk-Inn29. október 2026
- 55. Bergur Ebbi – Erum við að ímynda okkur ranga framtíð?27. október 2026
- 54. Coca-Cola, gervigreind og framtíð markaðssetningar - Atli Sigurður20. október 2026






