Glælogn – hlaðvarp um norræn fræði

Árnastofnun

MenningBókmenntirSaga

Fyrir alla sem þyrstir í fróðleik um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlandanna. Fræðimennirnir Hjalti Snær Ægisson og Teresa Dröfn Njarðvík veita innsýn í menningarheim miðalda og spjalla um nýleg, fræðileg skrif. Handritagrúskarar af ýmsu tagi segja frá rannsóknum sínum. Hlaðvarpið er á vegum Árnastofnunar. Tónlist: TSS: „Drums of Congo“.

Andvari og allt það

Greinar sem rætt er um í þættinum:  Mario Martín Páez, “Towards an anthropology of destiny: The dynamics of fate in Old Norse literature as illustrated by Volsunga saga,” Gripla 2024: 247–278. Andrew McGillivray, “Consumption and Intoxication in and Old Norse legendary saga,” Food Culture in Medieval Scandinavia (Routledge 2022), 191–206. Kirsi Kanerva, “Genre matters? Female Suicide in mythic, mythic-heroic, and historical contexts,” Folklore and Old Norse Mythology 2021, 551–589.

Heimur í orðum – Menningararfur á pappír

Forverðir gegna mikilvægu hlutverki á hvers kyns listasöfnum, forngripasöfnum og handritasöfnum. Forvörðurinn er sú manneskja innan varðveislustofnunarinnar sem gerir við skemmdir og spyrnir á móti eyðingunni hljóðu sem er stöðugt að verki. Í þessum þætti er rætt við Hildi Ploder Vigfúsdóttur, pappírsforvörð á Landsbókasafni Íslands.

Minni pokinn

Bókin sem rætt er um í þættinum: Ármann Jakobsson, Minor Characters in Icelandic Sagas: A Narratological Study. Palmgrave Macmillan, 2025.

Heimur í orðum – Kristniboðskóngarnir og skáldin þeirra

Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur og loks til Svíþjóðar. Bergsbók er feikistór og geymir sögurnar miklu um kristniboðskonungana Ólaf Tryggvason og Ólaf Helga Haraldsson. Á milli sagnanna tveggja eru skrifuð stórkostleg stök trúarkvæði og tengd konungunum tveimur, þar á meðal Geisli Einars Skúlasonar og sjálf Lilja í elstu varðveittu gerð. Í þessum þætti fengum við Guðrúnu Nordal forstöðumann Árnastofnunar til að segja okkur frá Bergsbók – sögunum, kvæðunum og konungunum tveimur sem þar eru í forgrunni.

Heimur í orðum – Uppsala-Edda

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum.    Í þessum þætti er rætt við Hauk Þorgeirsson handritafræðing um þennan merka grip.

Hverju reiddust goðin?

Bókin sem rætt er um í þættinum:  Olof Sundquist. The Demise of Norse Religion: Dismantling and Defending the Old Order in Viking Age Scandinavia (De Gruyter, 2024).

Heimur í orðum – Íslendingar í Svíþjóð

Síðari hluti sautjándu aldarinnar er stórveldistími í sögu Svíþjóðar. Pólitísk og hernaðarleg ítök sænska konungsríkisins voru gríðarleg umhverfis Eystrasaltið, en slíku valdi fylgir sterk þörf fyrir skilning og hagfelldar túlkanir á eigin fortíð.    Í þessum þætti er rætt við Margréti Eggertsdóttur, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, um íslenska handritasafnara í Svíþjóð.

Ég minnist þín Gvendur

Bókin sem rætt er um í þættinum:  Margaret Clunies Ross: Skaldic Poetry as Christian Progaganda (Boydell & Brewer, 2026).

Heimur í orðum – Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum

Manneskjur höfðu sömu tilfinningar á miðöldum og þær hafa í nútímanum, en sá orðaforði sem við notum til að lýsa tilfinningum hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Í þætti dagsins er rætt við Sif Ríkharðsdóttur bókmenntafræðing um tilfinningar í miðaldabókmenntum.

Úti alla nóttina

Greinar sem rætt er um í þættinum: John McKinnell, “Useless Knowledge? The Paradox of Alvíssmál,” Saga-Book 41/2017, 79–96. Frog, “Preserving Blunders in Eddic Poems: Formula Variations in Numbered Inventories of Vafþrúðnismál and Grímnismál,” Scripta Islandica 72/2021, 43–91.

Þér gæti líka líkað...