Heimur í orðum – Einu sinni voru handrit ekki helgir gripir
Í dag umgöngumst við íslensku handritin af mikilli varkárni, nánast eins og um helga gripi væri að ræða. En það gerðu fyrrum eigendur þeirra ekki endilega. Þeir hikuðu ekki við að bæta við texta handrita, taka bækur í sundur og jafnvel breyta myndskreytingum eftir eigin smekk.
Í þessum þætti segir Beeke Stegmann, rannsóknardósent við Árnastofnun, okkur frá Skarðsbók Jónsbókar og hvernig viðhorf miðalda til handritanna voru frábrugðin varðveislustefnu nútímans.

