Heimur í orðum – Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif hennar á hið daglega líf

· Menning, Bókmenntir, Saga

Grænland var numið af norrænu fólki á seinni hluta 10. aldar. Ályktanir um viðarskort á Grænlandi á miðöldum eru hluti af hugmyndum manna um óhagstæð náttúruskilyrði sem leiddu til endaloka norrænu byggðanna þar.
Þær hugmyndir byggja hins vegar ekki á rannsóknum á viðarnotkun, eingöngu ályktunum sem dregnar hafa verið út frá rituðum heimildum og nútímaaðstæðum. Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur hefur rannsakað málið ofan í kjölinn. Í dag spjöllum við um Grænland á miðöldum.

Fleiri þættir af Glælogn – hlaðvarp um norræn fræði