Grjótkastið: Svandís og Þórdís á trúnó um lok stjórnarsamstarfsins, furðulega kosningabaráttu og heiminn eftir risasigur Trumps
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum. Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú, hræðsluna við að toppa of snemma, átökin um vinstri og hægri, skattamál og baráttu VG fyrir lífinu hvorki meira né minna. Trúnó og greiningar á dýptina sem áhugafólk um stjórnmál ætti ekki að missa af.
Fleiri þættir af Grjótkastið
- Skuggabankastjórnin okt/264. október 2026
- Hvað verður um Icelandair? Og niðursveiflan framundan25. september 2026
- Kreppa í kortunum10. september 2026
- Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB?5. september 2026
- Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn27. ágúst 2026
- Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild25. ágúst 2026






