Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar
Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast gulu blómum langt fram eftir hausti sem og þjóðarblómið holtasóley, maríustakk, fjalldalafífil, Ulleungreynir/Pálmareynir ‘Dodong’, hindber, brómber, hegg og fleira úr rósaætt.
Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
Fleiri þættir af Gull og grænir skógar
- Göngutúrar langir og stuttir2. október 2026
- Göngutúrar langir og stuttir2. október 2026
- Göngutúrar langir og stuttir2. október 2026
- Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið25. september 2026
- 19. Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar18. september 2026
- 18. Rósir: Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður11. september 2026