Göngutúrar langir og stuttir

· Menning, Samfélagið, Landið, Heilsa, Andleg málefni

Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umhverfi og menningu. Dæmi eru tekin um heimspekinga og rithöfunda sem nýttu sér göngutúra til innblásturs og þekkingarsköpunar en einnig er rætt við fólk sem fer í göngutúra vegna vinnu, til dæmis við fræsöfnun eða söfnun græðlinga. Viðmælendur nýta sér sumir hverjir göngutúra til kennslu og aðrir hafa farið í göngutúr daglega í áraraðir – og aldrei misst úr dag.
Viðmælendur: Steinar Björgvinsson, Rósa Bjarnadóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.

Fleiri þættir af Gull og grænir skógar