Þingholt: Merkur gróður, saga og brautryðjendastarf Einars Helgasonar
Gengið er um Þingholtin og sunnan við Þingholt þar sem gróðrarstöð Einars Helgassonar stóð. Rætt er um merkilegan gróður við Laufásveg, Fjölnisveg, Urðarstíg og víðar. Fjallað er sérstaklega um bergfléttur eins og þá sem kennd hefur verið við bæði Hringbraut 10 og Sóleyjargötu 37 – sem er í raun og veru sama húsið. Beyki og askur við Laufásveg eru heimsótt en askurinn var stærsta tré Reykjavíkur um tíma. Smakkað er á kirsuberjum af fuglakirsi við Urðarstíg. Gengið er um með Samson Bjarnari Harðarssyni garðyrkjufræðingi og langslagsarkitekt. Sveighyrnir, svartelri og umhirða á öldnum ilmreyni koma einnig við sögu.
Viðmælandi: Samson Bjarnar Harðarson.
Fleiri þættir af Gull og grænir skógar
- Frá eðallauftrjám til jólatrjáa – frá eikum í stafafuru.20. nóvember 2026
- Frá eðallauftrjám til jólatrjáa – frá eikum í stafafuru.20. nóvember 2026
- Tré sem mótuðu mannkynssöguna13. nóvember 2026
- Tré sem mótuðu mannkynssöguna13. nóvember 2026
- Þingholt: Merkur gróður, saga og brautryðjendastarf Einars Helgasonar6. nóvember 2026
- Hrekkjavaka, uppskerulok og óhugnanlegur gróður30. október 2026