Frá eðallauftrjám til jólatrjáa – frá eikum í stafafuru.

· Menning, Samfélagið, Landið, Heilsa, Andleg málefni

Hvað er eðallauftré og af hverju eru þau svona mikið eðal? Í þættinum er talað um hinar langlífustu trjátegundir sem geta nú orðið þrifist á Íslandi. Þessi tré eru þó mis-auðræktanleg eftir tegundum. Rætt er sérstaklega um eikur og því velt upp hvort hún sé „konungur skógarins“. Minnst er á svepprætur og mikilvægi þeirra. Í seinni hluta þáttarins er talað um barrtré og þá sérstaklega stafafuru sem er orðin nokkuð áberandi á Íslandi. Stafafura er jafnframt vinsælasta íslenska jólatréð af þeim innlendu tegundum sem boðið er upp á. En hvernig kom það til, að stafafuru hafi verið komið á framfæri sem jólatré og hvenær gerðist það?

Viðmælendur: Guðmundur Árland Hannesson, Kristján Friðbertsson og Steinar Björgvinsson.

Fleiri þættir af Gull og grænir skógar