Gullkastið - Leiðinlegur Farsi
Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst.
Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbúning á leik gegn liði sem hefur komist upp með að svindla á áður óþekktum skala í 15 ár. Hrikalega óstöðugur dómari frá stór Manchester svæðinu hjálpaði alls ekki til og í raun kálaði annars sæmilegum leik. Það hjálpaði ekki til með óbragðið.
Næst eru það útileikir gegn LASK Í Austurríki og Brentford í London og ljóst að Iraola þarf að fara ná að innleiða sína hugmyndafræði í liðið og ná betra flæði í leik liðsins.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar.
GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór

