Gullkastið

Kop.is

Íþróttir

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Gullkastið - Hvaða Man Utd lið mætir á Anfield?

Manchester United bíður okkar núna um helgina eftir snarpt landsleikjahlé og enn einu sinni eru þeir með nýjan stjóra í brúnni. Liverpool á Anfield er fyrsta verkefni Pochettino sem stjóri United og ljóst að Liverpool verður að fara bæta hræðilegan árangur sinn gegn þessu United liði. Síðustu þrír deildarleikir hafa verið vægast sagt afleitir gegn annars afleitu United liði. Anfield þarf líka að skila miklu fleiri stigum en hann hefur verið að gera. Notuðum einnig landsleikjahlés þátt til að spá í hópnum hjá Liverpool út frá því hvaða leikmenn er líklegir til að kveðja á næstu misserum og þá hvar er svigrúm til að kaupa nýja menn í staðin. Jafnvel strax í janúar. Iraola er búinn að fá nokkra mánuði til að læra á hópinn sem hann er með og sjá hvar hægt er að bæta hann. Ögurverk liðið er komið með nýja vörn og GB Hús Farmenn vikunnar eru týndir synir sem eru að koma til baka eftir langtímameiðsli. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Önnur lota að baki

Landsleikjahlé framundan og 10.umferðir búnar af mótinu. Tókum stöðuna á toppliðunum almennt, vesen á Manchester liðunum, jafn skemmtilegt Brighton lið og Arsenal liðið er leiðinlegt. Sigurleikur hjá Liverpool gegn Palace og vont tap í Tyrklandi. Ögurverkliðið var á sínum stað þar sem Trent sótti um vinnu. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Atletico Arsenal

Liverpool voru bókstaflega flautaðir úr leik á Anfield gegn svari Englands við Atletico Madrid. Hroðaleg úrslit og ákaflega pirrandi leikur en frammistaða Liverpool ekki alslæm og liðið ennþá í mótun. Áhugaverð úrslit í öðrum leikjum í deildinni og tími á uppfært PowerRank. Er Liverpool ennþá hvað helst í baráttu við Man Utd eins og við töldum fyrir mót? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Handbragð Iraola

Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe Gomez sigurmarkið! Spáðum í deildinni almennt með áherslu á stórskemmtilegt United lið Michael Carrick, nýtt Ögurverk lið er farið af stað og framundan er risaslagur gegn Arsenal á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Pennahittingur

Það er hittingur hjá Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni. Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes, Ingimar og Ívar Örn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili

Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert mótlæti og markaveisla í Austurríki gegn LASK. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Leiðinlegur Farsi

Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst. Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbúning á leik gegn liði sem hefur komist upp með að svindla á áður óþekktum skala í 15 ár. Hrikalega óstöðugur dómari frá stór Manchester svæðinu hjálpaði alls ekki til og í raun kálaði annars sæmilegum leik. Það hjálpaði ekki til með óbragðið. Næst eru það útileikir gegn LASK Í Austurríki og Brentford í London og ljóst að Iraola þarf að fara ná að innleiða sína hugmyndafræði í liðið og ná betra flæði í leik liðsins. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Athyglin á Anfield

Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City undanfarin ár. Spáum í þeim leik og stöðunni á þessu risa máli. Ögurverk liðið er á sínum stað og við spáum í leikjum helgarinnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Ævintýralegt Svindl

Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan stóra leka árið 2018 en hann girti svo rosalega niður um Man City að ekki var lengur hægt að horfa framhjá þessu. Samt hefur þetta tekið átta ár! Flest af þeim ár þar sem Liverpool var með frábært lið og ætti að skoðast í enn betra ljósi núna. Augljóst að þetta var stórt umræðuefni í annars daufu landsleikjahléi. Julian Ward er tekinn við DoF stöðunni og það stefnir í meiðslavandræði í sóknarlínunni hjá Liverpool eftir þessa bölvuðu landsleiki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is Hópferðina á leikinn gegn Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks, þetta er símtalið ef ykkur vantar smiði Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór

Gullkastið - Fyrsti Kafli

Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var fyrsta liðið til að fara með öll þrjú stigin þaðan síðan í janúar.   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember (Örfá sæti laus) Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Þér gæti líka líkað...