Podcast by Handkastið

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Grátlegt tap hjá Val í Evrópu. FH gáfu Portúgölunum alvöru slag en máttu þola tap. Nýja HSÍ appið er komið í loftið. Haukar eru óstöðvand og Fram gerði góða fer til Eyja. Stjarnan kom öllum á óvart og sló ÍBV út úr bikarkeppninni. Meistaradeildin í handbolta er komin á fullt. Akureyraslagurinn í opinni dagskrá klukkan 18:00 á sunnudaginn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. Stiven Tobar farinn að æfa með Valsmönnum en fær hann samning? Valur farnir til Evrópu og FH einnig í eldlínunni í vikunni. Bræðurnir skildu jafnir og fóru heim með sitthvort stigið. ÍR eru svo gott sem komnir upp úr Grill 66 deildinni eins og Afturelding kvenna megin. Mun frammistaða Björgvins Páls í deildinni skipta einhverju máli um valið í lokahóp landsliðsins í desember? Natasja Hammer mætti á völlinn 15 dögum eftir fæðingu. HK með risa sigur gegn Gróttu. Bikarkeppnin fer af stað hjá stelpunum í vikunni en Haukar og Valur sitja hjá. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Gunn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins í kvöld og gerðu upp vikuna í handboltanum. Fyrsta skóflustunga var tekin af nýrri þjóðarhöll í dag. Enn einn Íslendingurinn er á leið til Þýskalands. FH unnu stórleikinn við Val. Einvígi landsliðsmarkmannanna var á allra vörum eftir leik kvöldsins. Haukar orðnir deildarmeistarar? Munu KA/Þór einnig slíta samstarfinu í handboltanum á næstu leiktíð? ÍR lentu á Valsveggnum í síðari hálfleik. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Stymmi Klippari, Davíð Már og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Þægilegur sigur landsliðsins í Tallinn. Bjarki Már var frábær í þessu verkefni. Reynir Þór að stimpla sig inn í landsliðið. Bjöggi kominn í 300 leiki. Kvennalið Hauka með stórsigur í Evrópu. "Nýliðar" Selfoss safna stigum í Olís deildinni. Olís deildin fer aftur af stað í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsins Íslands og Úkraínu á miðvikudaginn. Ísland setti markamet í Laugardagshöllinni. Ómar Ingi kominn í 400 marka klúbbinn. Reynir Þór með frábæra innkomu og gæti verið nýtt vopn fyrir Snorra Stein. Leikgleðin lak af Jóni Bjarna í hans fyrsta heimaleik með landsliðinu. Haukar eru á toppi Olís deildinnar og spila í Evrópu um helgina. Hvað hefur komið okkur mest á óvart í Olís deildunum, Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá til sölu. Arnar Pétursson vonast eftir að fá að halda vegferðinni áfram með kvenna landsliðið. Landsliðsstrákar orðaðir við hin og þessi félög í Evrópu. Haukar fóru illa með KA í toppslagnum. Fáliðaðir Eyjamenn unnu frábæran sigur á Stjörnunni. Vandræði Frammara halda áfram eftir tap gegn Víking. Eyjakonur unnu Gróttu án Birnu Berg. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Ítarlegt viðtal við Arnar Pétursson þjálfara íslenska kvennalandsliðsins en í hádeginu í dag kynnti hann 17 manna EM hóp sinn fyrir komandi stórmót. Arnar Pétursson tók við íslenska kvennalandsliðinu í ágúst árið 2019 og er því á sínu sjötti ári með liðið. Hann er á leið á sitt fjórða stórmót í röð en samningur hans við HSÍ rennur út eftir mótið. Hann ræddi EM hópinn, framtíðina, stöðuna á leikmönnum hópsins, vegferðina og framtíð sína sem þjálfara íslenska landsliðsins.

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp heila umferð í Olís deild karla sem fram fór í vikunni. Haukarnir geta ekki hætt að vinna leiki og stefna á bestu byrjun síðan árið 2000. KA fór í Kaplakrika og rassskellti FH. Selfoss eru á síðasta séns hjá Séffanum. ÍBV fóru fáliðaðir í Virkið og tóku bæðin stigin með sér til Eyja. Gunnar Róberts hafði hægt um sig í þessari umferð en þá mætti Arnór Snær til leiks. Olís deild kvenna er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framundan í vikunni hjá körlunum. Stelpurnar fara aftur af stað í vikunni eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu liða Olís deildinnar er áhyggjuefni. Nóg af handbolta um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
