Hlaðvarp

Tveir kallar

Tveir kallar

48 þættir5 hlustanirSíðast uppfært 11.5.2026

Tveir kallar með podcast. tveirkallar.is @tveirkallar á Instagram

Mynd fyrir þáttinn 47: Kosið í borginni hjá Tveir kallar

47: Kosið í borginni

11. maí, 2026

Tveir kallar detta í að tala um kosningabaráttuna í þætti sem átti að koma út eftir kosningar en ákveða á síðustu stundu að breyta til og flýta útgáfu, segja frá tengslum við samsærisnöttara og Sjálfstæðisflokkinn, hafa engan tíma fyrir hlustendur og finna á…

Mynd fyrir þáttinn 46: Skammarþríhyrningurinn hjá Tveir kallar

46: Skammarþríhyrningurinn

4. maí, 2026

Tveir kallar fara í leikhús, hringja í kerlingu og læra ekki nafnið á neinum sem þeir hitta. Þeir bjóða í matarboð en muna ekki alveg hvernig bróðir þeirra lítur út.

Mynd fyrir þáttinn 45: Þetta verður allt í lagi hjá Tveir kallar

45: Þetta verður allt í lagi

20. apríl, 2026

Skilaboð berast frá Hollandi og trufla tvo kalla við að rifja upp menntaskólaárin þegar annar þeirra var fótboltasjomli og hinn dauðarokkari. Þeir snúa bökum saman og reyna að róa fíl í postulínsbúð, fá hataða hópa til að hata minna og svara að lokum spurningu…

Mynd fyrir þáttinn 44: Ótrúlega óheppnir karlar hjá Tveir kallar

44: Ótrúlega óheppnir karlar

6. apríl, 2026

Nokkrir alveg ótrúlega óheppnir karlar fara saman í ferðalag, halda þriðja í páskum heilagan, gefa gjafir, fara í golf og hafa gaman en brjóta engin lög (svo sannað sé). Síðan fá þeir ofnæmi fyrir heiminum, stíga til hliðar og hefja störf við umönnun.

Mynd fyrir þáttinn 43: Núna má allt hjá Tveir kallar

43: Núna má allt

23. mars, 2026

Tveir kallar eiga við ýmis heilsufarsvandamál að etja svo þeir fara í rannsóknir og tala um rannsóknir og láta stinga sig til blóðs. Í sjúkrarúmunum horfa þeir á heimildarmyndina Inside the manosphere og ræða hana.

Mynd fyrir þáttinn 42: Margar pælingar hjá Tveir kallar

42: Margar pælingar

9. mars, 2026

Tveir kallar ropa án þess að segja afsakið, eru eitthvað pirraðir og reka hlaðvörp í umvörpum. Tveir kallar kalla kallakalla kallakalla en vita ekki alveg hvað þeir eiga að kalla kallakallapælingar dagsins svo þeir ákveða að njóta lista, lesa skáldskap og…

Mynd fyrir þáttinn 41: Bein pæling hjá Tveir kallar

41: Bein pæling

23. febrúar, 2026

Tveir kallar taka hlaðvarp í beinni útsendingu, hlustendum dagsins rignir inn í símtölum og báðir fara á trúnó. Ekkert eitthvað. Ging gang gúllí gúllí.

Mynd fyrir þáttinn 40: Ekki er allt sem sýnist hjá Tveir kallar

40: Ekki er allt sem sýnist

9. febrúar, 2026

Tveir kallar tala um þumalputtablöðrur (ekki spyrja) og ógleymanlegar tölur, horfa á fræga kvikmynd sem fjallar ekki um það sem við héldum og ákveða síðan að gerast eltihrellar konu sem er ekki til. Síðan finna þeir sér sálfræðing. Ekki veitir af.

Mynd fyrir þáttinn 39: Dauðinn hjá Tveir kallar

39: Dauðinn

26. janúar, 2026

Tveir kallar deyja ungir og hefja eftirlífið þar sem þeir ræða óhjákvæmilega um trú og tilfinningar. Þeir verða vegan en eru svo umkringdir af konum yfir fimmtugt. Þá teleporta þeir sig í burtu.

Mynd fyrir þáttinn 38: Pillur hjá Tveir kallar

38: Pillur

22. janúar, 2026

Tveir kallar mislesa aðstæður og mistekst að halda uppi kurteislegum samræðum svo þeir flýja land og skoða sig um í Japan. Þeir finna pillur og gamlar glósubækur og nagandi ótti um óuppgerð mál grípur um sig.