Handkastið - Afhverju hætti Elías Már? Sópur á Selfossi og töfralæknir í Hafnarfirði
Gestur þáttarins að þessu sinni er góðvinur þáttarins, Benedikt Grétarsson íþróttafréttamaður og mikill handboltaáhugamaður.
Selfyssingar eru komnir í úrslit og mæta þar annað hvort Haukum eða ÍBV sem mætast í fjórða leik á miðvikudaginn. Við fórum yfir leik kvöldsins þar Selfoss sló Val úr leik. Einnig fórum við yfir leik Hauka og ÍBV sem fór fram í gærkvöldi og öll lætin sem hafa einkennt það einvígi.
HSÍ tilkynnti í dag að Elías Már væri hættur sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins og við fórum ofan í saumana í því máli. Auk þess ræddum við aðeins um Final4 sem fram fer í Köln og umspilið í Grillinu.
Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Fleiri þættir af Handkastið
- Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni5. október 2026
- Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum?2. október 2026
- Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla28. september 2026
- 307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur?24. september 2026
- Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik21. september 2026
- Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar?16. september 2026
