Handkastið - Er veðmálavandi í íslenskum handbolta?
Gestur þáttarins að þessu sinni er Guðmundur Sigurðsson nemi við sálfræði við HÍ en hann gerði BS-rannsókn um veðmálaþátttöku handboltamanna á Íslandi.
Í rannsókninni kom fram að tæplega 47% leikmanna úr félagsliðum Íslandsmótsins hafi tekið þátt í peningaspilum. Af þeim sem veðjuðu á handboltaleiki höfðu 38% veðjað á leiki í eigin deild og rúmlega 10% veðjað á eigin leik.
Við ræddum um rannsóknina, lög og reglur HSÍ varðandi veðmálaþáttöku leikmanna, fórum yfir siðareglur HSÍ og margt fleira.
Að lokum fórum við svo yfir stuðlabergið fyrir næstu umferð í Olís-deild karla sem hefst seinni partinn í dag.
Fleiri þættir af Handkastið
- Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni5. október 2026
- Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum?2. október 2026
- Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla28. september 2026
- 307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur?24. september 2026
- Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik21. september 2026
- Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar?16. september 2026
