Handkastið - Uppgjör fyrri hluta Olís-deildar karla og Seðillinn kom í spjall
Í þættinum að þessu sinni fóru Sérfræðingurinn og Ponzan yfir fyrri hluta Olís-deildar karla sem hálfnuð er, ásamt góðvini þáttarins, Árna Stefáni Guðjónssyni.
Farið var yfir hvert lið vel og vandlega. Farið var yfir gengi liðanna og spáð var í spilin fyrir seinni hlutann. Einnig var valið úrvalslið fyrri umferðarinnar.
Í lok þáttarins kom Siggi Seðill, markvörður Stjörnunnar í létt spjall og fengu hlustendur að spyrja hann spjörunum út.
12. umferðin í Olís-deildinni hefst á laugardaginn og lýkur á mánudagskvöldið. Stuðlarnir eru komnir inná Coolbet og farið var yfir bestu stuðlana á landinu.
Fleiri þættir af Handkastið
- Erfið vika í Eyjum og Akureyrarslagur framundan19. nóvember 2026
- Mætt á völlinn 15 dögum eftir fæðingu og leikhléið sem gerði allt vitlaust16. nóvember 2026
- Verður samstarfinu slitið fyrir norðan og einvígi landsliðsmarkmannanna12. nóvember 2026
- Gönguferð í Tallinn og hverjir ákveða búningana fyrir leiki?8. nóvember 2026
- Nýtt vopn í Reyni Þór og þróun handboltans6. nóvember 2026
- Landsleikjavika og línur farnar að skýrast í Olís deildinni2. nóvember 2026
