Hlaðvarp um heilsu og vellíðan. Bent Marinósson ÍAK einkaþálfari fær til sín áhugaverða gesti til að ræða heilsu og heilsutengd málefni.
Stafrænt ofbeldi og starfrænar áskoranir ungmenna - Kolbrún Hrund
7. apríl, 2023
Viðmælandi þáttarins er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir. Hún er verkefnastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur, en hann sér um allt sem snýr að jafnréttis- og kynheilbrigðismálum í skólum í skólum og frístundarstarfi Reykjavíkurborgar.
Slakaðu á fullkomnunarólinni með GETMO (Good Enough To Move On)
27. mars, 2023
Í þessum þætti fer Bent yfir ákveðna aðferðarfræði við framkvæmd verkefna eða daglegra athafna sem má kallast GETMO, en það er skammstöfun á Good Enough To Move On. Þeir sem þekkja fullkomnunaráráttu að einhverju leyti vita hversu hamlandi það fyrirbæri er.
Yfir 200 þekktar veirur orsaka kvef hjá okkur mannfólkinu
23. febrúar, 2023
Kvef er einn algengasti kvillinn sem herjar á okkur mannfólkið. Það eru þekktar yfir 200 tegundir veira sem orsaka kvef hjá okkur mannfólkinu. Algengt er að börn fái kvef 6-10x á ári og að meðaltali fá fullorðnir kvef um 4x á ári.
Er leikur og gleði mikilvæg fyrir heilsuna? - Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi
20. febrúar, 2023
Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi á Reykjalundi er gestur okkar í þessum þætti. Í þættinum bendir Hrefna á mikilvægi þess að hafa gaman og að leika sér, rannsóknir sýna fram á það vísindalega að það hafi góð áhrif á líðan og heilsu.
Helstu vítamín - yfirlit
16. febrúar, 2023
Í þessum þætti förum við yfir helstu flokka vítamína, þeas C og B vítamín annarsvegar og hinsvegar A, D, E og K vítamín. Við förum stuttlega yfir í hvaða fæðu þessi vítamín eru og hvernig skortseinkenni lýsa sér.
Innsæið og kraftur náttúrunnar - Heiðrún María
13. febrúar, 2023
Heiðrún María er gestur okkar í dag. Í þættinum ræða þau Bent og Heiðrún María m.a. töfra þess að njóta náttúrunnar, vatnsins, kuldans og ná stjórn á eigin hugsunum og líkama.
Leitin að innsæinu - Einar Valur Scehving
9. febrúar, 2023
Einar Valur Sceving tónlistarmaður er gestur okkar að þessu sinni. Bent Marinósson og Einar eiga hér stutt spjall milli kennslustunda hjá Einari og ræða þar m.a.
Bætum áramótaheitin - nokkrar leiðir til bætingar
6. febrúar, 2023
Í þessum þætti skoðum við ýmis vandamál sem eru við áramótaheit, eða önnur markmið, hvernig við getum mögulega skoðað markmiðin okkar í öðru ljósi og þ.a.l. náð betri árangri.
Einelti - frá sjónarhorni gerenda og þolanda - Arnór Bjarki Blomsterberg
2. febrúar, 2023
Í þessum þætti ræða Arnór Bjarki Blomsterberg, Nói, og Bent um reynslu sína af einelti. Annarsvegar segir Nói frá sinni hlið af einelti sem gerandi, þroskaferli, iðrun og leiðina að fyrirgefningu.
Taugakerfið þitt er ekki í Gettu betur!
30. janúar, 2023
Taugakerfið er magnað fyrirbæri og mætti almenn þekking á því sannarlega meiri því með því að skilja hvað taugakerfið er að segja okkur getur okkur liðið betur og fundið leiðir til betri heilsu, andlegrar og líkamlegrar.