Heimsborgarar

Hljóðkirkjan

SamfélagiðMenning & listirÚtlönd

Við ferðumst mikið. Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn. En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar. Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt. Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn. Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi. Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.

#10 Tuttugu ferlegir ferðafélagar

Að fara á interrail er góð skemmtun. Eða það fer reyndar eftir því hver ferðafélagi þinn er. Heimsborgarar gera heiðarlega tilraun til að finna þá allra verstu.

#9 „Ofmetið. Mjög langt labb. 1 stjarna.“

Ekki einu sinni mestu undur veraldar eru óhult fyrir kvörtunum frá ósáttum ferðalöngum. Kínamúrinn? „Mjög gamall múr og liturinn ekki góður. Ekki fara þangað.“ Einnig: örlítil áfangastaðalistagerð, stóra fánalýsingamálið gert upp og sitthvað fleira. Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.

#8 Rassinn á Stjána

Heimsborgarar etja saman 20 þjóðfánum í nýjum leik, svara nokkrum spurningum úr sal og tækla gríðarlegt hitamál: ferðalög innanlands. Eru þau algjör snilld eða ömurlegt drasl? Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.

#7 Vængjaðar vítisvélar

Okkur er talin trú um það að flug sé öruggasti ferðamátinn. Staðreyndin er hins vegar sú að það er stórhættulegt að fljúga og hvert skipti sem þú gengur ólaskaður frá borði flugvélar er í rauninni algjört kraftaverk. Spennið sætisólarnar, signið ykkur og takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.

#6 Þrjár ferðir til fjár

Heimsborgarar flugu út í heim — og svo aftur til baka með öll koffort stútfull af góssi og góðum minningum. Einnig er kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður: Útsláttarkeppni þjóðsöngva! Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.

#5 Biðin langa

Á eldfjallaeyjunni Tanna í Suður-Kyrrahafi hefur hópur fólks beðið í næstum heila öld eftir heimsókn frá dularfullum dáta að nafni John Frum. Eða var það Broom?

#4 Ófreskjan og einræðisherrann

Hvað gerir vitfirrtur þjóðarleiðtogi þegar kvikmyndaiðnaðurinn í ríki hans er í niðursveiflu? Jú, hann auðvitað rænir kvikmyndaleikstjóra frá nágrannaríkinu og pínir hann til að leikstýra sjö kvikmyndum í fullri lengd á tveimur árum. Heimsborgarar fjalla um þetta glórulausa plan, sem þér er að sjálfsögðu meira en velkomið að tjá þig um í Heimsborgarar - Umræðuhópur.

#3 Landsleikur!

Hvernig verða lönd til? Jú, með slembivali á internetinu auðvitað. Heimsborgarar fara í sinn fyrsta „landsleik“ og reyna að fá úr því skorið hvort landið sé betra – Haukstópía eða Baldland. Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.

#2 Bobbi í Berlín

Þjóðverjar eru þekktir fyrir vandvirkni, verkvit og stundvísi. Einhvern veginn klikkaði þetta samt allt þegar ákveðið var að byggja nýjan flugvöll í Berlín eftir fall múrsins 1989. Baldur leiðir okkur í gegnum söguna af þessu ævintýralega klúðri, sennilega því næstvandræðalegasta í sögu Þýskalands. Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.

#1 Skepnuskapur

Heimurinn er fullur af alls konar framandi furðuskepnum, en við Íslendingar fengum öll lélegu dýrin. Í þessum fyrsta „alvöru“ þætti Heimsborgara ræða þeir Baldur og Haukur um það hvernig fríska mætti upp á íslensku dýraflóruna. Afsakið ... fánuna. Umræður eru velkomnar í Heimsborgarar – Umræðuhópur.

Þér gæti líka líkað...