Allt í hnút á Norður-Írlandi
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur.
Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn virðist í sjónmáli.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Sterk staða Meloni á Ítalíu19. nóvember 2026
- Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu12. nóvember 2026
- Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum5. nóvember 2026
- Kosningar í fjórum ríkjum29. október 2026
- Mikil seigla í hagkerfi heimsins8. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026